Dökkt Ljóst

Vinna með tilvísanir

Örstutt um tilvísanir

Þegar þú birtir síður og tekur úr loftinu muntu á endanum þurfa að búa til tilvísanir. Tilvísun passar upp á að þegar síða er ekki lengur til (skilar 404 villu) munu notendur og leitarvélar rata á nýja vefslóð. Þannig mun notandinn ekki enda á villusíðu eftir að hafa fylgt eldri leitarniðurstöðu.

Wagtail býður upp á tvær tegundir af tilvísunum sem ræðst af því hvort hakað er við Varanleg eða ekki:

  • Varanleg tilvísun (sjálfvalið)
  • Tímabundin tilvísun

Notandinn mun ekki sjá neinn á þessum tveimur tegundum tilvísana, en leitarvél mun bregðast mismunandi við þeim.

  • Þegar um tímabundna tilvísun er að ræða mun leitarvélin skrá bæði gömlu og nýju vefslóðina (tilvísunina).
  • Þegar um varanlega tilvísun er að ræða mun leitarvélin merkja gömlu vefslóðina sem úrelda og geyma þá nýju í staðinn.
Athugasemd

Wagtail merkir nýjar tilvísanir sjálfkrafa sem varanlega til þess að koma í veg fyrir að vefsíðan þín lendi neðar í leitarvélaniðurstöðum.

Stillingar á tilvísunum.

Til þess að stilla upp tilvísunum skaltu fara í 'Tilvísanir' undir Stillingar sem þú sérð í vinstri valmyndinni.

Redirects listing, with a search field in the header, buttons to add and import redirects, and rows of existing underneath

Í listanum yfir tilvísanir getur þú:

  • Stofnaðu nýja tilvísun með því að smella á Bæta við tilvísun efst til hægri.
  • Þú getur leitað að tilvísunum sem þegar hafa verið stofnaðar í leitarstikunni. Niðurstöðurnar uppfærast sjálfkrafa þegar þú slærð inn textann.
  • Hægt er að breyta tilvísun með því að smella á vefslóðina í listanum.
Editing form for a redirect, with from fields, Site field, permanent checkbox, and destination fields for page and URL options
  • Þú notar Tilvísun frá reitinn til þess að tilgreina slóðina sem er ekki lengur til á vefnum þínum.
  • Veldu vefsvæði úr Frá vefsvæði reitnum ef það á við (t.d. ef þú ert með mörg vefsvæði)
  • Hakaðu við hvort tilvísunin eigi að vera varanleg eða tímabundin (ekki hakað við).

Í síðasta skrefinu getur þú annað hvort vísað á nýja síðu innan Wagtail eða vísað á annað vefsvæði fyrir utan Wagtail.

  • Veldu síðuna þína úr valmyndinni fyrir Tilvísun á síðu.
  • Sláðu inn fullt lén og vefslóð fyrir Tilvísun á vefslóð.
Athugasemd

Hafðu í huga að tilvísun er aðeins virkjuð ef síða finnst ekki. Tilvísun mun ekki virka ef til er síða sem passar við vefslóðina.