Dökkt Ljóst

Nýtt í Wagtail 6.0

Hérna eru meginpunktar Wagtail 6.0. Fyrir frekar upplýsingar skoðaðu allt í v6.0 útgáfuskjölunum.

Samsvörun í útliti

Eftir að endurbætur voru gerðar á skráningum síðna býður Wagtail nú upp á sameinað leitar- og síunarviðmót fyrir allar skráningar. Þetta mun auðvelda það að fara í gegnum efni, sérstaklega fyrir vefsíður sem inniheldur margar síður. Við vonum að þetta muni einnig vera möguleiki út í gegn á vefumsjónarkerfinu fyrir samsvörun í útliti og upplifun.

Í þessari útgáfu er samsvörun í útliti einungis fyrir síður, snifsi og eyðublöð. Í útgáfunni fá síður þessar síur:

  • Síðu tegund
  • Síðast uppfærð
  • Eigandi
  • Hver gerði breytingar
  • Síða
  • Hvort hún sé með undirsíður
  • Þýðing

Styður hægri-til-vinstri tungumál

Wagtail 6.0 right-to-left interface example, with the page editor and a page preview

Stjórnendaviðmótið styður nú hægri-til-vinstri tungumál, svo sem persneska, arabíska og hebreska. Þó það sé unnið að því að gera betur, þá geta tungumál verið birt í réttri átt í stjórnendaviðmótinu.

Fyrir notendur sem nota hægri-til-vinstri tungumál ættu ekki að vera neinar sérsniðnar stillingar svo að þetta komi rétt út.

Aðgengis skoðari í breytingaviðmóti síðna

Wagtail 6.0 accessibility checker demo, with 3 issues found relating to headings on the page

Innbyggður aðgengis skoðari sést nú á hliðarvalmyndinni til hægri þegar síður og snifsi eru skoðuð í breytingarviðmótinu. Í þessari útfáfu sýnir skoðarinn einungis aðgengis tengd vandamál fyrir síðuna þegar hann er opinn. Í framtíðinni verður skoðarinn uppfærður til þess að styða skoðanir á öllu efni í gegnum allar síður. Fyrir frekari upplýsingar um framtíðaráform skoðaðu þessa færslu: Looking for sponsorship – Accessibility checks for site administrators á Wagtail blogginu.

Betrumbætt dökkt þema

Wagtail 6.0 in dark mode – with the same example as the accessibility checker

Wagtail 6.0 kynnir betrumbætt dökkt þema innan stjórnendaviðmótsins. Dökkt þema er mikilvægur þáttur í aðgengismálum og styður við sjálfbærni í umhverfismálum með því að minnka orkunotkun OLED tækja.

Skýrsla notkunar á síðu tegundum

Wagtail 6.0 page types report, on a simple site with 9 page types and 30 pages

Nýja skýrslan varðandi notkun síðu tegunda brýtur niður magn síðna af hverri tegund. Þetta hjálpar okkur að svara spurningum eins og:

  • Hvaða tegundir af síðum erum við að nota í vefumsjónarkerfinu?
  • Hversu margar síður eru af þessari tegund?
  • Hvenær var síða af þessari tegund síðast breytt? Af hverjum? Hvaða síða var það?

Þessi eiginleika var bætt við þökk sé samstarfi við Mozilla.

Bætingar í aðgengismálum

Þessi útgafa kemur með mörgum bætinum á sviði aðgengismála í stjórnendaviðmótinu:

  • Betri stuðningur við skilgreiningu á höfuð reitum í töflum
  • Stuðningur við lykaborð við breytingar á töflum
  • Stuðningur við lyklaborð í aðgerðarvalmyndum
  • Betrumbætingar merkja sem notaðir eru af skjálesurum og talgreinum

Skoðaðu a id="a1">aðgengiskaflann fyrir frekari upplýsingar á stöðu aðgengismála Wagtail.