# Nýtt í Wagtail 6.0

Page URL: https://guide.wagtail.org/is-latest/releases/new-in-wagtail-6-0/


Hérna eru meginpunktar Wagtail 6.0. Fyrir frekar upplýsingar skoðaðu allt í [v6.0 útgáfuskjölunum](https://docs.wagtail.org/en/latest/releases/6.0.html).

## **Samsvörun í útliti**

![Wagtail 6.0 universal listings interface, with example of searching for a "bread" blog page](https://guide-media.wagtail.org/images/wagtail-6-filters-listing.width-900.png)

Eftir að endurbætur voru gerðar á skráningum síðna býður Wagtail nú upp á sameinað leitar- og síunarviðmót fyrir allar skráningar. Þetta mun auðvelda það að fara í gegnum efni, sérstaklega fyrir vefsíður sem inniheldur margar síður. Við vonum að þetta muni einnig vera möguleiki út í gegn á vefumsjónarkerfinu fyrir samsvörun í útliti og upplifun.

Í þessari útgáfu er samsvörun í útliti einungis fyrir [síður](/en-latest/how-to-guides/manage-pages/), [snifsi](/en-latest/how-to-guides/manage-snippets/) og eyðublöð. Í útgáfunni fá síður þessar síur:

* Síðu tegund
* Síðast uppfærð
* Eigandi
* Hver gerði breytingar
* Síða
* Hvort hún sé með undirsíður
* Þýðing

## **Styður hægri-til-vinstri tungumál**

![Wagtail 6.0 right-to-left interface example, with the page editor and a page preview](https://guide-media.wagtail.org/images/wagtail-6-rtl.width-900.png)

Stjórnendaviðmótið styður nú hægri-til-vinstri tungumál, svo sem persneska, arabíska og hebreska. Þó það sé unnið að því að gera betur, þá geta tungumál verið birt í réttri átt í stjórnendaviðmótinu.

Fyrir notendur sem nota hægri-til-vinstri tungumál ættu ekki að vera neinar sérsniðnar stillingar svo að þetta komi rétt út.

## **Aðgengis skoðari í breytingaviðmóti síðna**

![Wagtail 6.0 accessibility checker demo, with 3 issues found relating to headings on the page](https://guide-media.wagtail.org/images/wagtail-6-accessibility-checker-light.width-900.png)

Innbyggður aðgengis skoðari sést nú á hliðarvalmyndinni til hægri þegar síður og snifsi eru skoðuð í breytingarviðmótinu. Í þessari útfáfu sýnir skoðarinn einungis aðgengis tengd vandamál fyrir síðuna þegar hann er opinn. Í framtíðinni verður skoðarinn uppfærður til þess að styða skoðanir á öllu efni í gegnum allar síður. Fyrir frekari upplýsingar um framtíðaráform skoðaðu þessa færslu: [Looking for sponsorship – Accessibility checks for site administrators](https://wagtail.org/blog/looking-for-sponsorship-accessibility-checks-for-site-administrators/) á Wagtail blogginu.

## Betrumbætt dökkt þema

![Wagtail 6.0 in dark mode – with the same example as the accessibility checker](https://guide-media.wagtail.org/images/wagtail-6-accessibility-checker-dark.width-900.png)

Wagtail 6.0 kynnir betrumbætt dökkt þema innan stjórnendaviðmótsins. Dökkt þema er mikilvægur þáttur í [aðgengismálum](https://wagtail.org/accessibility/) og styður við [sjálfbærni](https://wagtail.org/sustainability/) í umhverfismálum með því að minnka orkunotkun OLED tækja.

## **Skýrsla notkunar á síðu tegundum**

![Wagtail 6.0 page types report, on a simple site with 9 page types and 30 pages](https://guide-media.wagtail.org/images/wagtail-6-page-types-usage-report.width-900.png)

Nýja skýrslan varðandi notkun síðu tegunda brýtur niður magn síðna af hverri tegund. Þetta hjálpar okkur að svara spurningum eins og:

* Hvaða tegundir af síðum erum við að nota í vefumsjónarkerfinu?
* Hversu margar síður eru af þessari tegund?
* Hvenær var síða af þessari tegund síðast breytt? Af hverjum? Hvaða síða var það?

Þessi eiginleika var bætt við þökk sé [samstarfi](https://wagtail.org/sponsor/) við Mozilla.

## **Bætingar í aðgengismálum**

Þessi útgafa kemur með mörgum bætinum á sviði aðgengismála í stjórnendaviðmótinu:

* Betri stuðningur við skilgreiningu á höfuð reitum í töflum
* Stuðningur við lykaborð við breytingar á töflum
* Stuðningur við lyklaborð í aðgerðarvalmyndum
* Betrumbætingar merkja sem notaðir eru af skjálesurum og talgreinum

Skoðaðu a id="a1">aðgengiskaflann fyrir frekari upplýsingar á stöðu aðgengismála Wagtail.

