Dökkt Ljóst

Vinna með skrár

Skrár á borð við PDF er hægt að vinna með í Skráarstjóranum, sem má finna í vinstri valmyndinni. Skráarstjórinn gerir þér kleift að bæta við og eyða skrám úr vefumsjónarkerfinu.

Documents listing, with Search field in header, Add document button, and a Collections dropdown. Underneath, are 4 rows of documents with a header row above
  • Bættu við skrám með því að smella á hnappinn Bæta við skrá uppi í hægra horninu.
  • Leitaðu að skrám í vefumsjónarkerfinu með því að slá inn leitarstreng í leitarreitinn. Niðurstöðurnar verða uppfærðar sjálfkrafa á meðan þú skrifar.
  • Þú getur einnig síað niðurstöðurnar niður á Safn með því að velja eitt slíkt úr fellivalmyndinni fyrir ofan skráarlistann.
  • Veldu mörg skjöl með því að velja hakreitina vinstra megin við hverja röð, þá er hægt að nota aðgerðaslánna neðst á skjánum til að gera sömu aðgerðina á allar völdu skrárnar
  • Breyttu upplýsingum um skrá með því að smella á titil hennar.
  • Þegar þú ert að breyta upplýsingum um skrá þá er hægt að skipta út skránni sjálfri. Það þýðir að þú getur uppfært skránna án þess að þurfa að uppfæra hana á öllum stöðum þar sem verið er að vísa í hana. Með því að skipta um skrá þá er nú vísað í nýju skránna á öllum síðum sem vísuðu í gömlu skránna.
  • Breyttu safni skráar með því að velja nýtt safn í fellivalmyndinni.
  • Bættu við merkjum með því að bæta þeim við í Merki reitinn
  • Vistaðu eða eyddu skrá með tökkunum neðst í glugganum.
Viðvörun

Eyddum skrám er eytt, ekki er hægt að nálgast þær aftur.