---
title: "Hvernig byrja \u00e9g?"
description: "Ef \u00fe\u00fa hefur mj\u00f6g litla reynslu af Wagtail m\u00e6lum vi\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa farir \u00ed gegnum lei\u00f0arv\u00edsana okkar \u00ed r\u00f6\u00f0. Ef \u00fe\u00fa hefur einhverja e\u00f0a \u00fe\u00f3 nokkra reynslu g\u00e6ti henta\u00f0 betur a\u00f0 sko\u00f0a flokkana h\u00e9r fyrir ne\u00f0an til a\u00f0 fr\u00e6\u00f0ast betur um \u00e1kve\u00f0na hluta Wagtail."
last_modified: "2022-10-28"
---

# Hvernig byrja ég?

Page URL: https://guide.wagtail.org/is/tutorials/getting-started/

> Ef þú hefur mjög litla reynslu af Wagtail mælum við með því að þú farir í gegnum leiðarvísana okkar í röð. Ef þú hefur einhverja eða þó nokkra reynslu gæti hentað betur að skoða flokkana hér fyrir neðan til að fræðast betur um ákveðna hluta Wagtail.


Velkomin/n í notendahandbók Wagtail. Fyrst þú ert á annað borð komin/n hingað veistu líklegast nú þegar að Wagtail er vefumsjónarkerfi (CMS) sem búið var til af Torchbox. Wagtail er opinn hugbúnaður og þróað í sameiningu af alþjóðlegu teymi forritara og hönnuða. Wagtail er frábært vefumsjónarkerfi fyrir margs konar vefsíður því það er auðvelt fyrir forritara að sníða það að eigin þörfum án mikillar fyrirhafnar.

Þessi kennsluvefur er samansafn af stuttum leiðarvísum, útskýringum, uppflettigreinum og fleiru sem hjálpa þér að læra að ritstýra og sjá um efni í staðlaðri Wagtail vefsíðu. Ef þú ert ritstjóri, stjórnandi eða almennur notandi Wagtail, þá er þessi kennsluvefur fyrir þig. Ef þú ert forritari, gæti verið að þú sért frekar að leita að [þróunarskjölun](https://docs.wagtail.org/) Wagtail.

Ef þú hefur mjög litla reynslu af Wagtail mælum við með því að þú farir í gegnum leiðarvísana okkar í röð. Ef þú hefur einhverja eða þó nokkra reynslu gæti hentað betur að skoða flokkana hér fyrir neðan til að fræðast betur um ákveðna hluta Wagtail.

## Wagtail sýnivefurinn

Dæmin í þessum leiðarvísi eru byggð á [bakerydemo sýnivefnum](https://github.com/wagtail/bakerydemo). Þessar leiðbeingar eru þó nægilega almennar til að eiga við um nánast hvaða Wagtail vefsíðu sem er.

Á þessum kennsluvef munum við notast við vefslóðina [www.example.com](https://www.example.com/), til að tákna lén vefsíðunnar.

## Innskráning

- Fyrsta aðgerð ritstjóra eða stjórnanda vefs er að skrá sig inn á stjórnborðið.
- Þú kemst í stjórnborðið með því að skrifa **/admin** fyrir aftan vefslóð vefsíðunnar þinnar (til dæmis [www.example.com/admin](https://www.example.com/admin)).
- Sláðu inn notandanafnið þitt og lykilorðið og smelltu á **Sign in.**

![Screenshot of "Sign in to Wagtail" screen, with username, password, "Remember me" fields, a "Forgotten password?" link, and a submit button. Shows the Wagtail logo at the bottom, and has a gradient background from teal to indigo](https://guide-media.wagtail.org/images/Screenshot_of_22Sign_in_to_Wagtail22_screen_wi.width-900.png)

