---
title: "N\u00fdtt \u00ed Wagtail 4.1"
description: "\u00cd Wagtail 4.0 og 4.1 h\u00f6fum vi\u00f0 gert umfangsmiklar breytingar \u00e1 s\u00ed\u00f0uritlinum og fleiri t\u00f3lum sem sty\u00f0ja vi\u00f0 alla \u00ed vefumsj\u00f3narteyminu."
last_modified: "2026-07-11"
---
> Documentation Index
> Fetch the complete documentation index at: https://guide.wagtail.org/llms.txt
> Use this file to discover all available pages before exploring further.

Page URL: https://guide.wagtail.org/is/releases/new-in-wagtail-4-1/

# Nýtt í Wagtail 4.1

## Á þessari síðu

- [Skjölun þegar þú þarft á henni að halda](https://guide.wagtail.org/is/releases/new-in-wagtail-4-1/#onboarding-documentation-when-you-need-it)
- [Endurhannaður síðu ritill](https://guide.wagtail.org/is/releases/new-in-wagtail-4-1/#a-fully-redesigned-page-editor)
- [Betri textaritill](https://guide.wagtail.org/is/releases/new-in-wagtail-4-1/#richer-rich-text)
- [Bætt aðgengi og stuðningur við Windows High Contrast stillingar.](https://guide.wagtail.org/is/releases/new-in-wagtail-4-1/#enhanced-accessibility-and-support-for-windows-high-contrast-mode)
- [Ný leið til að forskoða síður](https://guide.wagtail.org/is/releases/new-in-wagtail-4-1/#a-new-way-to-preview)
- [Einfaldari tímastilling á birtingu síðna](https://guide.wagtail.org/is/releases/new-in-wagtail-4-1/#simplified-scheduled-publishing)
- [Litaðu vefkerfið eins og þú vilt hafa það.](https://guide.wagtail.org/is/releases/new-in-wagtail-4-1/#colour-the-admin-your-way)
- [Notkunar skýrslur](https://guide.wagtail.org/is/releases/new-in-wagtail-4-1/#usage-reports)
- [Öflugri snifsi](https://guide.wagtail.org/is/releases/new-in-wagtail-4-1/#supercharged-snippets)
- [Vefsvæðis-stillingar fyrir vefumsjónarkerfi með marga undirvefi](https://guide.wagtail.org/is/releases/new-in-wagtail-4-1/#global-settings-for-multi-site-installations)

Wagtail er svolítið eins og bókasafn, fullt af allskonar flottri virkni og flest ættu að geta fundið eitthvað sem þau elska við það. Forritarar elska hversu auðvelt er að byggja við kóðann, höfundar elska viðmótið til að búa til efni, sem hannað er sérstaklega fyrir þá, og stjórnendur kunna að meta skýrslur og tól sem hjálpa þeim að halda utan um notendurna þeirra sem og efnið sem þeir búa til.

Í Wagtail 4.0 og 4.1 höfum við gert umfangsmiklar breytingar á síðuritlinum og fleiri tólum sem styðja við alla í vefumsjónarteyminu — frá vefstjóranum ritstýrir efni og myndum vefsins til sölumanneskjunnar sem er að birta nýja grein eða frétt. Kíkjum aðeins á þessa nýju virkni og breytingar sem þú finnur í nýjustu útgáfum Wagtail.

## Skjölun þegar þú þarft á henni að halda

![](https://guide-media.wagtail.org/images/Wagtail_dashboard_with_new_Things_in_Wagtail_4.width-900.png)

Frá og með Wagtail 4.1, þá verður aðgengileg ný "Hjálp" valmynd með hlekkjum í skjölun fyrir notendur. Þessa hlekki má aðlaga fyrir hvert verkefni, eða benda beint á skjölun Wagtail.

Við höfum einnig bætt við áberandi borða á aðalsíðuna, svo að fólk sem er að nota nýja útgáfu Wagtail í fyrsta skipti fær skýra ábendingu um að skoða skjölunina.

## Endurhannaður síðu ritill

Þegar þú skráir þig inn í Wagtail 4.0 tekurðu strax eftir að síðuritillinn hefur verið endurhannaður frá grunni. Þökk sé rausnarlegum [stuðningi frá Google](https://www.prnewswire.com/news-releases/google-sponsors-wagtail-cmss-next-generation-web-content-management-experience-301473717.html) hefur útlit, form og virkni verið uppfærð til að gefa þeim sem skrifa efni eins góða upplifun og hægt er. Hinn svokallaði StreamField hefur fengið andlitslyftingu til að gera allt ferlið þægilegra og nú er enn auðveldara en áður að búa til blokkir inni í blokkum. Þú tekur einnig eftir því að allir hlutar síðuritilsins eru samanfellanlegir sem ætti að minnka vegalengdina sem þú þarft að skruna upp og niður skjáinn þegar þú ert með efnismikla síðu. Af því að – og við vitum öll hvernig það er – *enginn* vill skruna endalaust nema það sé gegnum TikTok myndbönd af sætum dýrum.

![](https://guide-media.wagtail.org/images/Page_editor_for_22Breads_and_Circuses22_blog_p.width-900_aWwHuBl.png)

Í Wagtail 4.1 gengum við enn lengra og bættum við nýjum hnappi til að fella saman alla hluta síðunnar í einu, auk þess sem við kynnum til sögunnar lítið *yfirlitskort* yfir síðuna. Það sýnir þér alla síðuhlutana í einu og auðveldar þér að finna staði á löngum síðum, auk þess sem það verður auðveldara að finna villur í innsetningu.

![](https://guide-media.wagtail.org/images/Page_editor_for_22Breads_and_Circuses22_blog_p.width-900_rxHi1iC.png)

## Betri textaritill

Þegar síðuritillinn var uppfærðu voru miklar breytingar gerðar á textaritlinum. Höfundar geta nú sniðið texta og búið til textablokkir með "/" skástrik skipun í byrjun línu. Þeir sem eru þreyttir á að velja texta og smella á takka til að sníða texta munu elska þessa virkni því nú getur þú skipt frá venjulegum texta yfir í númeraðan lista, yfir í fyrirsögn og í texta aftur án þess að fingurnir yfirgefi lyklaborðið. Þú getur einnig notað skástriks skipunina, eða litla græna plús takann sem hún virkjar, til að skipta blokkum í tvennt, og bæta nýjum blokkum inn á milli.

![This is a screenshot demonstrating the new slash command you can use in the Rich Text editor of Wagtail](https://guide-media.wagtail.org/images/This_is_a_screenshot_demonstrating_the_new_sla.width-900_uJFDAUA.png)

Tenglar eru nú sjálfkrafa stofnaðir. Þegar þú afritar og límir vefslóð í textaritil mun hann sjálfkrafa sjá um að búa til tengil úr honum, í stað þess að þú þurfir handvirkt að breyta vefslóð í tengil. Við gerðum það einnig auðvelt að taka aftur svona sjálfvirkar snið aðgerðir, eins og það að það stofnist númeraður listi þegar þú skrifar "1." Wagtail 4 textaritillinn hefur einnig aukið við stuðning við tungumál sem eru skrifuð frá hægri til vinstri.

Önnur gagnleg uppfærsla á textaritlinum er stafateljarinn sem er hægt að birta undir honum. Ef þú ert með höfunda sem fara stöðugt yfir hámarkið geta þeir nú sjálfir fylgst með því hversu marga stafi er búið að skrifa í hverja blokk.

## Bætt aðgengi og stuðningur við Windows High Contrast stillingar.

Stærstu endurbæturnar eru hlutir sem margir notendur taka ekki endilega eftir strax. En við erum að vona að notendur sem nota að mestu lyklaborð eða skjálesara í sinni tölvunotkun muni fá betri upplifun því við erum búin að samræma staðsetningar á hjálpartextum og villuboðum í gegnum allt kerfið. Við gerðum hjálpartextabólur aðgengilegri og bættum einnig úr aðgengismálum á innskráningarsíðunni fyrir Wagtail með því að laga uppbygginguna á henni ásamt því að bæta við hlekk í aðalefnið og skilaboðum fyrir skjálesara.

Stærsti aðgengismálasigur í Wagtail 4.0 er bættur stuðningur við Windows High Contrast stillingarnar. Windows High Contrast er virkni gagnast mjög notendum með skerta sjón eða mikið ljósnæmi. Með þessum viðbótum hefur Wagtail eignast mikið af stílum og einingum til að styðja við liti sem Windows High Contrast stillingar krefjast og býður notendum þess upp á bætta upplifun.

## Ný leið til að forskoða síður

Í stað þess að þurfa að opna nýjan flipa eða vafraglugga til að forskoða síðuna þína, þá býður Wagtail 4.0 upp á forskoðun í rauntíma í hliðarfleka innan síðuritilsins. Í þessum fleka geta höfundar efnis forskoðað hvernig síðan mun líta út í mörgum mismunandi skjátækjum án þess að þurfa að nota innbyggða virkni vafrans til þess. Með örfáum smellum er hægt að sjá hvernig síðan mun líta út í síma, á spjaldtölvu og á tölvuskjá. Einnig er hægt að opna venjulega forskoðun ef þú vilt, en við höldum að þú munir elska nýju forskoðunina svo mikið að þú munir aldrei vilja opna forskoðun aftur í nýjum glugga.

![](https://guide-media.wagtail.org/images/Page_editor_for_Bread_and_Circuses_page_The_fo.width-900.png)

## Einfaldari tímastilling á birtingu síðna

Í Wagtail 4.1 er ennþá auðveldara að stilla hvenær síða á að fara í loftið. Í upplýsinga hliðarvalmyndinni er nú hægt að stilla beint tímasetningu, sem sjálfkrafa vistar síðuna, og uppfærir upplýsingar um hvenær síðan á að fara í loftið (og hvenær hún á mögulega að fara úr loftinu)

## Litaðu vefkerfið eins og þú vilt hafa það.

Líkar þér ekki við litina sem við völdum fyrir Wagtail 4.0? Viltu nota litina úr merki fyrirtækisins? Viltu hafa meiri andstæður í litum fyrir notendur þína? Nú er hægt að sérsníða útlitið í Wagtail með þemum. Ef þú saknar gamla græna litarins *virkilega* mikið og ert ekki á sömu bláu línu og við getur þú skipt auðveldlega í gamla litinn. Við verðum kannski pínu leið ef þú gerir það, en við skiljum líka að það eru ekki allir ein og þú mátt hafa hlutina eins og þú vilt.

## Notkunar skýrslur

Fram til þessa þá hefur verið erfitt að nálgast notkunar upplýsingar fyrir mismunandi gerðir efnis og hefur það krafist sérstillinga af hendi forritara. Frá og með Wagtail 4.1 eru upplýsingar um notkun alltaf aðgengilegar, og auðvelt að nálgast þær, burtséð frá stærð vefsíðunnar.

Hérna má sjá hvernig notkunar upplýsingar líta út fyrir snifsi:

![](https://guide-media.wagtail.org/images/Snippet_editing_form_for_a_People_snippet_inst.width-900.png)

## Öflugri snifsi

Ef þú skoðar betur skjáskotið hér að ofan, þá geturðu séð að það er ýmislegt nýtt að gerast með snifsin! Nú er hægt að stilla þau þannig að þau haldi utan um söguna, hægt að vista uppköst, og tímastilla hvenær þau fara í loftið.

## Vefsvæðis-stillingar fyrir vefumsjónarkerfi með marga undirvefi

Þið sem eruð með margar vefsíður í einu Wagtail kerfi, fagnið! Með því að kynna til sögunnar stillingar fyrir vefsvæði þarftu ekki að setja inn stillingar fyrir hvert vefsvæði aftur og aftur. Nýtt gagnamódel sem heitir *BaseGenericSetting* leyfir þér að skilgreina stillingar sem deilast á milli margra vefsvæða í stað þess að bæta við stillingum fyrir hvert einasta vefsvæði.

*Last updated: júlí 11, 2026*


## Site Map

Here is a list of every page of this guide:

- [Wagtail user guide](https://guide.wagtail.org/en/markdown/): This documentation is written for anyone creating content or managing content production in Wagtail. It covers everything you can expect when using a standard Wagtail site.
    - [Getting started](https://guide.wagtail.org/en/getting-started/markdown/): Here are our step-by-step tutorials to learn Wagtail concepts.
        - [Overview](https://guide.wagtail.org/en/getting-started/overview/markdown/): If you're brand new to Wagtail, we recommend you go through our guides in sequence. Otherwise, you can click through the different categories below to learn more about different aspects of Wagtail.
    - [How-to guides](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/markdown/): Use our guides to learn how to do a specific task in the CMS.
        - [Find your way around](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/find-your-way-around/markdown/): This section describes the different pages that you will see as you navigate around the CMS, and how you can find the content that you are looking for.
        - [Manage pages](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-pages/markdown/): How to create, edit, copy, and manage pages in the Wagtail admin, including block-based editing, comments, privacy, history, and aliases.
        - [Manage documents](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-documents/markdown/): Documents such as PDFs can be managed from the Documents interface, available in the left-hand menu.
        - [Manage images](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-images/markdown/): If you want to edit, add or remove images from the CMS outside of the individual pages you can do so from the Images interface.
        - [Manage snippets](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-snippets/markdown/): Snippets allow you to create elements on a website once and reuse them in multiple places.
        - [Manage forms](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-forms/markdown/): Build and manage forms from the Wagtail admin without any technical expertise, and review the submissions they collect.
        - [Manage collections](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-collections/markdown/): Access to specific sets of images and documents can be controlled by setting up ‘collections’.
        - [Manage redirects](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-redirects/markdown/): A redirect ensures that when a page is no longer available (404), the visitor and search engines are sent to a new page.
        - [Manage users and roles](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-users-and-roles/markdown/): As an administrator, a common task will be adding, modifying or removing user profiles.
        - [Manage sites](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-sites/markdown/): Learn how to manage Wagtail sites: list, add, edit, copy, and delete the site configurations that map hostnames to your page tree.
        - [Configure workflows for moderation](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/configure-workflows-for-moderation/markdown/): Workflows allow you to configure how moderation works on your site. Workflows are sequences of tasks, all of which must be approved before the workflow completes (by default, this results in the publication of the page, but depends on your site settings).
        - [Promote search results](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/promote-search-results/markdown/): Promoted search results are an optional Wagtail feature. For details of how to enable them on a Wagtail installation, see Promoted search results.
        - [Manage API tokens](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-api-tokens/markdown/): API tokens let applications and integrations connect to the Wagtail API on behalf of a user account. Learn how to create, rename, and revoke them.
    - [Concepts](https://guide.wagtail.org/en/concepts/markdown/): Wagtail has strong opinions about CMS best practices. This section describes why Wagtail works how it does from a user’s perspective.
        - [Wagtail interfaces](https://guide.wagtail.org/en/concepts/wagtail-interfaces/markdown/): A Wagtail interface is a screen in the Wagtail portal where you can manage a particular content type. The following are the several interfaces available to you in the Wagtail CMS.
        - [Pages](https://guide.wagtail.org/en/concepts/pages/markdown/): You can use Wagtail Pages to organize the content of your Wagtail websites. It's common for a typical website to have multiple web pages, and the web pages themselves can have several sections. The same is true for Wagtail pages.
        - [Reports](https://guide.wagtail.org/en/concepts/reports/markdown/): Reports are lists of pages that match a specific search. These lists give you an overview of the different actions taken on your website.
        - [Users status](https://guide.wagtail.org/en/concepts/users-status/markdown/): A Wagtail user can either be active or inactive. A user is active if they have the right permissions to log in and perform any action in the Admin interface.
        - [Page status](https://guide.wagtail.org/en/concepts/page-status/markdown/): Page status has to do with the current state of your pages. Your pages can be in one of seven different states.
        - [Accessibility features](https://guide.wagtail.org/en/concepts/accessibility-features/markdown/): An overview of the accessibility features built into the Wagtail admin interface, including navigation, keyboard support, and screen reader aids.
        - [Scheduled publishing](https://guide.wagtail.org/en/concepts/scheduled-publishing/markdown/): Schedule pages and snippets to go live at a specific date and time, and manage scheduled content revisions.
        - [Wagtail API](https://guide.wagtail.org/en/concepts/wagtail-api/markdown/): The Wagtail API lets other applications and integrations read, create, edit, and publish your content, with the same permissions and rules as the Admin interface.
    - [Reference](https://guide.wagtail.org/en/reference/markdown/): Our reference material gets to the point, giving the key information at a glance.
        - [Browser compatibility](https://guide.wagtail.org/en/reference/browser-compatibility/markdown/): For the best experience and security, we recommend that you keep your browser up to date.
        - [Content checks](https://guide.wagtail.org/en/reference/content-checks/markdown/): A built-in content quality checker system to meet high standards on accessibility, SEO, tone of voice, and any other aspect of content performance.
            - [Page metadata](https://guide.wagtail.org/en/reference/content-checks/page-metadata/markdown/): How Wagtail checks page metadata fields, including previews for search engines and other crawlers
        - [Account settings](https://guide.wagtail.org/en/reference/account-settings/markdown/): User account settings are specific to your account. Includes user preferences, notification settings, and more.
        - [Multi-site](https://guide.wagtail.org/en/reference/multi-site/markdown/): Reference for running multiple websites with Wagtail: how sites map hostnames to pages, and multi-site, multi-instance and multi-tenancy compared.
    - [Releases](https://guide.wagtail.org/en/releases/markdown/): Here are overviews of changes made to Wagtail in specific new releases.
        - [New in Wagtail 8.1](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-8-1/markdown/): Discover Wagtail 8.1: SEO metadata directly in content checks, better sitemaps for multilingual sites, and API v3 improvements
        - [New in Wagtail 8.0](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-8-0/markdown/): Discover Wagtail 8.0: the new v3 API to create, edit, and publish content programmatically, plus improvements to the site switcher, workflow details, and image handling.
        - [New in Wagtail 7.4](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-7-4/markdown/): Explore Wagtail 7.4: refined autosave, draft‑saving incomplete blocks, customizable listings, enhanced search, content checks, UI tweaks, and security fixes.
        - [New in Wagtail 7.3](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-7-3/markdown/): New features and other highlights from Wagtail 7.3: autosave, llms.txt, image performance
        - [New in Wagtail 7.2](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-7-2/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 7.2
        - [New in Wagtail 7.1](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-7-1/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 7.1
        - [New in Wagtail 7.0](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-7-0/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 7.0
        - [New in Wagtail 6.4](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-6-4/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 6.4
        - [New in Wagtail 6.3](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-6-3/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 6.3
        - [New in Wagtail 6.2](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-6-2/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 6.2
        - [New in Wagtail 6.1](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-6-1/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 6.1
        - [New in Wagtail 6.0](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-6-0/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 6.0
        - [New in Wagtail 5.2](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-5-2/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 5.2
        - [New in Wagtail 5.1](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-5-1/markdown/): Here are highlights from Wagtail 5.0. For more details, view the full v5.0 release notes.
        - [New in Wagtail 5.0](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-5-0/markdown/): Here are highlights from Wagtail 5.0. For more details, view the full v5.0 release notes.
        - [New in Wagtail 4.2](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-4-2/markdown/): With Wagtail 4.0, 4.1, and now 4.2 – we've added many substantial updates to the Wagtail page editor as well as some other tools that support every member of a content team.
        - [New in Wagtail 4.1](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-4-1/markdown/): With Wagtail 4.0 and 4.1, we've added many substantial updates to the Wagtail page editor as well as some other tools that support every member of a content team.
    - [About](https://guide.wagtail.org/en/about/markdown/): The User Guide is a website to help content editors, moderators, administrators, and other users learn how to use the Wagtail content management system (CMS).
        - [Privacy policy](https://guide.wagtail.org/en/about/privacy-policy/markdown/): What information the Wagtail User Guide collects when you visit or use the site, why we collect it, and who we share it with.
        - [Documentation formats](https://guide.wagtail.org/en/about/documentation-formats/markdown/): The user guide is available in different formats, for people and for their agents: web pages, Markdown, llms.txt, an agent skill, a Model Context Protocol server, WebMCP tools, and an API.
        - [Digital emissions](https://guide.wagtail.org/en/about/digital-emissions/markdown/): How we measure the Wagtail User Guide's carbon emissions, and the services the site relies on.
