---
title: "Skilgreiningar \u00e1 st\u00f6\u00f0um vefs\u00ed\u00f0na \u00ed Wagtail"
description: "St\u00f6\u00f0lu\u00f0 Wagtail s\u00ed\u00f0a getur haft sj\u00f6 mismunandi st\u00f6\u00f0ur til \u00feess a\u00f0 hj\u00e1lpa \u00fe\u00e9r a\u00f0 skipuleggja og forgangsra\u00f0a efni vefsins"
last_modified: "2024-05-24"
---

# Skilgreiningar á stöðum vefsíðna í Wagtail

Page URL: https://guide.wagtail.org/is/reference/wagtail-page-status-definitions/

> Stöðluð Wagtail síða getur haft sjö mismunandi stöður til þess að hjálpa þér að skipuleggja og forgangsraða efni vefsins


Stöðluð Wagtail síða getur haft sjö mismunandi stöður til þess að hjálpa þér að skipuleggja og forgangsraða efni vefsins

Þessar stöður eru eftirfarandi:

- **Í birtingu:** Síðan er í birtingu og aðgengileg öllum gestum vefsins.
- **Uppkast:** Síðan er ekki í birtingu á vefnum.
- **Bíður samþykktar:** Síðan er í samþykktarferli.
- **Tímasett:** Síðan er ekki í birtingu en hefur verið stillt á að fara í loftið á ákveðnum degi og tíma.
- **Útrunnin:** Síðan er ekki í birtingu og var tekin úr loftinu vegna þess að hún var stillt á að fara úr loftinu á ákveðnum degi og tíma.
- **Í birtingu + uppkast:** Síðan er í birtingu en nýrri útgáfa hennar er enn uppkast.
- **Í birtingu + (önnur staða):** Síðan er í birtingu, en nýrri útgáfa hennar er með aðra stöðu.


Note: Ef Wagtail síðan þín hefur verið sérsniðin á einhvern hátt af forritara gæti hún boðið upp á fleiri stöður sem eru ekki í þessum lista. Ráðfærðu þig við forritarann eða vefstjórann þinn til þess að komast að því hvort vefsíðan sé með fleiri stöður.

