---
title: "Vinna me\u00f0 tilv\u00edsanir"
description: "Tilv\u00edsun passar upp \u00e1 a\u00f0 \u00feegar s\u00ed\u00f0a er ekki lengur til (skilar 404 villu) munu notendur og leitarv\u00e9lar rata \u00e1 n\u00fdja vefsl\u00f3\u00f0. "
last_modified: "2022-10-28"
---

# Vinna með tilvísanir

Page URL: https://guide.wagtail.org/is/how-to/managing-redirects/

> Tilvísun passar upp á að þegar síða er ekki lengur til (skilar 404 villu) munu notendur og leitarvélar rata á nýja vefslóð. 


## **Örstutt um tilvísanir**

Þegar þú birtir síður og tekur úr loftinu muntu á endanum þurfa að búa til tilvísanir. Tilvísun passar upp á að þegar síða er ekki lengur til (skilar 404 villu) munu notendur og leitarvélar rata á nýja vefslóð. Þannig mun notandinn ekki enda á villusíðu eftir að hafa fylgt eldri leitarniðurstöðu.

Wagtail býður upp á tvær tegundir af tilvísunum sem ræðst af því hvort hakað er við *Varanleg* eða ekki:

- Varanleg tilvísun (sjálfvalið)
- Tímabundin tilvísun

Notandinn mun ekki sjá neinn á þessum tveimur tegundum tilvísana, en leitarvél mun bregðast mismunandi við þeim.

- Þegar um tímabundna tilvísun er að ræða mun leitarvélin skrá bæði gömlu og nýju vefslóðina (tilvísunina).
- Þegar um varanlega tilvísun er að ræða mun leitarvélin merkja gömlu vefslóðina sem úrelda og geyma þá nýju í staðinn.


Note: Wagtail merkir nýjar tilvísanir sjálfkrafa sem varanlega til þess að koma í veg fyrir að vefsíðan þín lendi neðar í leitarvélaniðurstöðum.


## **Stillingar á tilvísunum.**

Til þess að stilla upp tilvísunum skaltu fara í 'Tilvísanir' undir Stillingar sem þú sérð í vinstri valmyndinni.

![Redirects listing, with a search field in the header, buttons to add and import redirects, and rows of existing underneath](https://guide-media.wagtail.org/images/screen42_redirects_interface.width-900.png)

Í listanum yfir tilvísanir getur þú:

- Stofnaðu nýja tilvísun með því að smella á *Bæta við tilvísun* efst til hægri.
- Þú getur leitað að tilvísunum sem þegar hafa verið stofnaðar í leitarstikunni. Niðurstöðurnar uppfærast sjálfkrafa þegar þú slærð inn textann.
- Hægt er að breyta tilvísun með því að smella á vefslóðina í listanum.

![Editing form for a redirect, with from fields, Site field, permanent checkbox, and destination fields for page and URL options](https://guide-media.wagtail.org/images/screen43_redirects_edit_redirect.width-900.png)

- Þú notar *Tilvísun frá* reitinn til þess að tilgreina slóðina sem er ekki lengur til á vefnum þínum.
- Veldu vefsvæði úr *Frá vefsvæði* reitnum ef það á við (t.d. ef þú ert með mörg vefsvæði)
- Hakaðu við hvort tilvísunin eigi að vera *varanleg* eða tímabundin (ekki hakað við).

Í síðasta skrefinu getur þú annað hvort vísað á nýja síðu innan Wagtail **eða** vísað á annað vefsvæði fyrir utan Wagtail.

- Veldu síðuna þína úr valmyndinni fyrir *Tilvísun á síðu*.
- Sláðu inn fullt lén og vefslóð fyrir *Tilvísun á vefslóð*.


Note: Hafðu í huga að tilvísun er aðeins virkjuð ef síða finnst ekki. Tilvísun mun ekki virka ef til er síða sem passar við vefslóðina.

