---
title: "Rata um vefumsj\u00f3narkerfi\u00f0"
description: "\u00deessi kafli l\u00fdsir mismunandi s\u00ed\u00f0um sem \u00fe\u00fa munt rekast \u00e1 \u00feegar \u00fe\u00fa vafrar um vefumsj\u00f3narkerfi\u00f0 og hvernig \u00fe\u00fa getur fundi\u00f0 \u00fea\u00f0 efni sem \u00fe\u00fa ert a\u00f0 leita a\u00f0."
last_modified: "2022-10-28"
---
> Documentation Index
> Fetch the complete documentation index at: https://guide.wagtail.org/llms.txt
> Use this file to discover all available pages before exploring further.

Page URL: https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/

# Rata um vefumsjónarkerfið

## Á þessari síðu

- [Yfirlitssíðan](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#the-dashboard)
  - [Hvernig á að komast á yfirlitssíðuna](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#how-to-reach-the-dashboard)
  - [Wagtail valmyndin](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#the-wagtail-sidebar)
  - [Flekarnir á stjórnborðinu](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#the-dashboard-panels)
    - [Síður sem eru í vinnslu](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#your-pages-in-a-workflow)
    - [Bíður yfirferðar](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#awaiting-your-review)
    - [Síðustu breytingar sem þú hefur gert](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#your-most-recent-edits)
    - [Læstar síður](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#your-locked-pages)
- [Valmyndin](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#the-sidebar)
  - [Leit](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#search)
  - [Síður](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#pages)
  - [Myndir](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#images)
  - [Skjöl](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#documents)
  - [Skýrslur](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#reports)
  - [Stillingar](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#settings)
  - [Hjálp](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#help)
  - [Snifsi](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#snippets)
  - [Skráningarform](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#forms)
- [Að nota leitina](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#using-search)
- [Veftrés síður](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#explorer-pages)
  - [Endurraða síðum](https://guide.wagtail.org/is/how-to/finding-your-way-around/#reordering-pages)

Þessi kafli lýsir mismunandi síðum sem þú munt rekast á þegar þú vafrar um vefumsjónarkerfið og hvernig þú getur fundið það efni sem þú ert að leita að.

## Yfirlitssíðan

Yfirlitssíðan er aðalsíðan í hverri Wagtail vefsíðu. Frá yfirlitssíðunni hefurðu aðgengi að öllu efni sem þú býrð til í Wagtail, en einnig skýrslum, stillingum og öðrum vefumsjónartólum.

Ef þú skoðar nýja útgáfu af Wagtail í fyrsta skiptið muntu sjá skilaboð í stjórnborðinu um breytingar á Wagtail. Þessi skilaboð innihalda einnig tengil yfir í þessa handbók þar sem þú getur fengið upplýsingar um breytingar.

![](https://guide-media.wagtail.org/images/Wagtail_dashboard_with_new_22Things_in_Wagtail.width-900.png)

Nú skulum við fara í gegnum mismunandi tól og tæki sem finna má í vefumsjónarkerfinu.

Athugasemd

Það sem þú sérð í stjórnborðinu fer eftir því hvaða notendaréttindi þú hefur fengið. Algengir réttindahópar eru skrifréttindi (Editors), ritstjórar (Moderators) og stjórnendur (Administrators).\
Þar sem auðvelt er að aðlaga Wagtail að mismunandi þörfum gæti stjórnborðið þitt litið öðruvísi út en það sem við sýnum hér í handbókinni. Við notum Wagtail Bakery sem sýnishorn. Ef þú átt í vandræðum með að finna stillingar eða virkni gætir þú þurft að spyrja þinn vefstjóra eða forritara hvort einhverju hafi verið breytt.

### Hvernig á að komast á yfirlitssíðuna

Þú ferð sjálfkrafa á yfirlitssíðuna í hvert skipti sem þú skráir þig inn í Wagtail. Ef þú ert á einhverri annarri síðu þá getur þú alltaf komist aftur á hana með því að smella á Wagtail fuglinn í horninu efst vinstra megin á skjánum.

### Wagtail valmyndin

Vinstra megin á stjórnborðinu og á öllum kerfishlutum Wagtail er valmynd. Þú getur notað hana til að nálgast mismunandi hluta Wagtail.

### Flekarnir á stjórnborðinu

![Screenshot of Wagtail’s dashboard, with sidebar, header, summary metrics, and listing for pages in different states](https://guide-media.wagtail.org/images/screen02_dashboard_editor.width-900.png)

#### Síður sem eru í vinnslu

*Þínar síður í vinnuflæði* flekinn sýnir þér síður sem eru í vinnslu sem þú átt eða hefur sent inn til yfirferðar, ásamt yfirferð sem bíður þín og hversu lengi þau verkefni hafa beðið.

#### Bíður yfirferðar

*Bíður yfirferðar* flekinn er aðeins sýnilegur ef þú ert með réttindi til að samþykkja síður eða stjórna vinnuflæði. Þessi fleki sýnir þér efni sem bíða yfirferðar frá þér.

Í þessum fleka getur þú:

- Smellt á nafn síðunnar til að breyta henni.
- Notað takkana til að færa síðuna á næsta stig í [þínu vinnuflæði](https://file+.vscode-resource.vscode-cdn.net/Users/thibaudcolas/Downloads/guide/Editor_s%20Guide%20rewrites/editor_manual/how_to_articles/how_to_dashboard.md#) með því að biðja um breytingar á síðu, samþykkja síðuna eða samþykkja síðuna með athugasemdum.
- Fengið snögga yfirsýn yfir stöðu síðunnar með því að fara með músina yfir hringina til þess að fá meiri upplýsingar um skrefið sem er í vinnslu. Stöðuhringirnir munu sýna hak fyrir hvert skref sem hefur verið klárað en tóman hring fyrir óklárað skref.
- Séð hversu lengi síða hefur beðið yfirferðar.

#### Síðustu breytingar sem þú hefur gert

*Síðustu breytingar sem þú hefur gert* flekinn sýnir síðustu fimm síður sem þú hefur breytt.

Þessi fleki sýnir þér dagsetninguna á síðustu breytingu og [núverandi stöðu síðunnar](https://guide.wagtail.org/is/reference/wagtail-page-status-definitions/).

#### Læstar síður

*Læstar síður* flekinn sýnir allar síður sem þú hefur læst þannig að aðeins þú getur breytt þeim. Í þessum fleka getur þú séð dagsetninguna sem síðunni var læst og smellt á titil síðunnar til þess að breyta henni.

## Valmyndin

Wagtail valmyndin gefur þér fljótt og gott aðgengi að efninu þínu ásamt stillingum. Valmöguleikar í valmynd geta verið breytilegir eftir því hvaða réttindi forritari eða vefstjóri hafa ákveðið að gefa þér. Stöðluð Wagtail uppsetning hefur nokkur aðalatriði í valmyndinni og verður farið yfir þau og notkun þeirra hér.

Athugasemd

Ef þú vilt að valmyndin taki minna pláss getur þú smellt á litlu hvítu örina nálægt toppnum á valmyndinni til að gera hana "mjóa" og gefa þér meira pláss til að skrifa.

### Leit

Efsti hlutinn af Wagtail valmyndinni er leitarbox sem þú getur notað til að leita að efni í Wagtail.

### Síður

Smelltu á *Síður* til að skoða veftréð fyrir vefinn þinn. Þú getur notað veftréð til að fá aðgengi að mismunandi hlutum vefsins þíns.

![](https://guide-media.wagtail.org/images/Wagtails_explorer_menu_with_7_entries._One_is_.width-900.png)

- Smelltu á nafn síðu til að fá aðgang að veftrés síðu fyrir þá síðu.
- Smelltu á breyta táknmyndina fyrir síðuna til að breyta henni
- Smelltu á örvarnar til að sjá undirsíður
- Til þess að komast aftur til baka í ákveðinn vefhluta smellir þú á titilinn fyrir hann

### Myndir

Smelltu á *Myndir* til að fara í myndasafnið og vinna með allar þær myndir sem þú hefur hlaðið inn í Wagtail.

### Skjöl

Smelltu á *Skjöl* til að fara í skjalasafnið og vinna með öll þau skjöl sem þú hefur hlaðið inn í Wagtail.

### Skýrslur

Smelltu á *Skýrslur* til að sjá þessar skýrslur:

- **Læstar síður**: Síður sem aðeins þú getur breytt.
- **Vinnuflæði**: Síður sem eru í samþykktarferli eða yfirlestri.
- **Skref vinnuflæðis**: Skref sem tilheyra vinnuflæði.
- **Saga síðu**
- **Elstu síðurnar**

### Stillingar

Smelltu á *Stillingar* til að komast í Wagtail stillingar. Ef þú ert með nægileg réttindi getur þú bætt við notendum, sett þá í hópa og framkvæmt önnur verkefni tengd stjórnun vefsíðunnar.

### Hjálp

Smelltu á *Hjálp* til þess að sjá tengla í skjölun og fræðsluefni ásamt upplýsingar um nýja virkni í nýjustu útgáfu Wagtail.

---

Aðrar valmyndir sem þú gætir séð:

### Snifsi

Snifsi gera þér kleift að búa til gögn og gagnasett einu sinni á vefnum þínum og nota þau á mörgum stöðum.

### Skráningarform

Ef það eru skráningarform á vefnum þínum getur þú smellt á *Skráningarform* til þess að búa til, uppfæra og breyta skráningarformunum þínum.

## Að nota leitina

![](https://guide-media.wagtail.org/images/Search_screen_with_22bread22_typed_in_focused_.width-900.png)

- Auðveld leið til að finna þá síðu sem þú vilt er að nota aðal leitina, sem er aðgengileg í valmyndinni vinstra megin.
- Þú skrifar bara inn hluta að allt nafn þeirrar síðu sem þú leitar að, og niðurstöðurnar eru uppfærðar jafn óðum.
- Með því að smella á titil leitarniðurstöðu þá ferðu á breytingasíðu þeirrar niðurstöðu. Þú getur aðgreint á milli síðna með svipað nafn með því að skoða yfirsíðu dálkinn, sem segir þér hver yfirsíða þessarar síðu er.

## Veftrés síður

Veftrés síðan sýnir þér undirsíður viðkomandi síðu og gerir þér kleift að gera aðgerðir tengdar þeim. Hér getur þú birt síður og tekið úr loftinu, fært síður til í veftrénu, farið lengra niður í veftréð eða endurraðað síðum undir yfirsíðunni.

![Listing of pages, with heading at the top and icon buttons. Underneath is a header row with a checkbox and column names, and then rows for different pages](https://guide-media.wagtail.org/images/screen05_explorer_page.width-900.png)

- Titill yfirsíðunnar sem þú ert að skoða er birtur efst á síðunni. Hver yfirsíða er líka efnissíða (í þessu tilfelli forsíða). Ef þú smellir á titil yfirsíðunnar getur þú breytt efni síðunnar.
- Fyrir neðan fyrirsögnina eru undirsíðurnar. Smelltu á titil undirsíðu til þess að breyta henni.
- Smelltu á örvarnar til að sjá undirsíður viðkomandi síðu.

![](https://guide-media.wagtail.org/images/screen07_explorer_page_breadcrumb.width-900.png)

- Eftir því sem þú smellir lengra í gegnum veftréð mun brauðmolaslóðin (stikan með síðunöfnum sem byrja á tákninu fyrir forsíðuna) sýna hvaða leið þú fórst gegnum veftréð. Smelltu á titil síðu í brauðmolaslóðinni til þess að sjá veftrés síðuna fyrir þá síðu.

![](https://guide-media.wagtail.org/images/screen091_page_more_dropdown.width-900.png)

- Smelltu á Aðgerðir valmyndina til að sjá lista yfir aðgerðir fyrir yfirsíðuna, t.d. færa, afrita, eyða, taka úr loftinu og saga síðu. Það er einnig "Röðun undirsíðna" hnappur sem gefur þér kost á að raða undirsíðunum í ákveðna röð.
- Til þess að bæta við undirsíðu smellir þú á "Bæta við undirsíðu" hnappinn. Þú getur séð hvernig yfirsíðan lítur út með því að smella á "Í birtingu" hnappinn. Smelltu á "Breyta" til að breyta efni síðunnar.

![](https://guide-media.wagtail.org/images/screen092_bulk_action_checkboxes.width-900.png)

- Það er hakreitur vinstra megin við hverja síðu. Ef þú ferð með músina yfir línurnar verður hann sýnilegur. Það er einnig hakreitur efst í vinstra horninu á skjánum, notaður til þess að velja eða afvelja alla aðra hakreiti á síðunni.
- Ef þú hakar í minnsta kosti einn hakreit muntu sjá aðgerðastiku neðst á skjánum sem mun sýna allar magn aðgerðir fyrir síður.
- Ef þú smellir á einhverja magn aðgerð ferð þú yfir á nýjan skjá með völdum síðum til að staðfesta aðgerðina.
- Svipaðir hnappar eru í boði fyrir hverja undirsíðu. Þeir sjást þegar þú ferð með músina yfir þær.

### Endurraða síðum

![](https://guide-media.wagtail.org/images/screen085_reorder_page_handles.width-900.png)

- Með því að smella á "Röðun undirsíðna" í fellivalmyndinni þá færðu upp lista af síðum með handföngum. Þetta gerir þér kleift að endurraða síðunum í þá röð sem þú vilt að þær birtist í valmyndum á vefsíðunni þinni.
- Endurraðaðu með því að smella á handföng síðnanna vinstra megin og draga þær til.
- Nýja röðunin er sjálfkrafa vistuð í hver skipti sem þú endurraðar.

*Last updated: október 28, 2022*


## Site Map

Here is a list of every page of this guide:

- [Wagtail user guide](https://guide.wagtail.org/en/markdown/): This documentation is written for anyone creating content or managing content production in Wagtail. It covers everything you can expect when using a standard Wagtail site.
    - [Getting started](https://guide.wagtail.org/en/getting-started/markdown/): Here are our step-by-step tutorials to learn Wagtail concepts.
        - [Overview](https://guide.wagtail.org/en/getting-started/overview/markdown/): If you're brand new to Wagtail, we recommend you go through our guides in sequence. Otherwise, you can click through the different categories below to learn more about different aspects of Wagtail.
    - [How-to guides](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/markdown/): Use our guides to learn how to do a specific task in the CMS.
        - [Find your way around](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/find-your-way-around/markdown/): This section describes the different pages that you will see as you navigate around the CMS, and how you can find the content that you are looking for.
        - [Manage pages](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-pages/markdown/): How to create, edit, copy, and manage pages in the Wagtail admin, including block-based editing, comments, privacy, history, and aliases.
        - [Manage documents](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-documents/markdown/): Documents such as PDFs can be managed from the Documents interface, available in the left-hand menu.
        - [Manage images](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-images/markdown/): If you want to edit, add or remove images from the CMS outside of the individual pages you can do so from the Images interface.
        - [Manage snippets](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-snippets/markdown/): Snippets allow you to create elements on a website once and reuse them in multiple places.
        - [Manage forms](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-forms/markdown/): Build and manage forms from the Wagtail admin without any technical expertise, and review the submissions they collect.
        - [Manage collections](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-collections/markdown/): Access to specific sets of images and documents can be controlled by setting up ‘collections’.
        - [Manage redirects](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-redirects/markdown/): A redirect ensures that when a page is no longer available (404), the visitor and search engines are sent to a new page.
        - [Manage users and roles](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-users-and-roles/markdown/): As an administrator, a common task will be adding, modifying or removing user profiles.
        - [Manage sites](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-sites/markdown/): Learn how to manage Wagtail sites: list, add, edit, copy, and delete the site configurations that map hostnames to your page tree.
        - [Configure workflows for moderation](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/configure-workflows-for-moderation/markdown/): Workflows allow you to configure how moderation works on your site. Workflows are sequences of tasks, all of which must be approved before the workflow completes (by default, this results in the publication of the page, but depends on your site settings).
        - [Promote search results](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/promote-search-results/markdown/): Promoted search results are an optional Wagtail feature. For details of how to enable them on a Wagtail installation, see Promoted search results.
        - [Manage API tokens](https://guide.wagtail.org/en/how-to-guides/manage-api-tokens/markdown/): API tokens let applications and integrations connect to the Wagtail API on behalf of a user account. Learn how to create, rename, and revoke them.
    - [Concepts](https://guide.wagtail.org/en/concepts/markdown/): Wagtail has strong opinions about CMS best practices. This section describes why Wagtail works how it does from a user’s perspective.
        - [Wagtail interfaces](https://guide.wagtail.org/en/concepts/wagtail-interfaces/markdown/): A Wagtail interface is a screen in the Wagtail portal where you can manage a particular content type. The following are the several interfaces available to you in the Wagtail CMS.
        - [Pages](https://guide.wagtail.org/en/concepts/pages/markdown/): You can use Wagtail Pages to organize the content of your Wagtail websites. It's common for a typical website to have multiple web pages, and the web pages themselves can have several sections. The same is true for Wagtail pages.
        - [Reports](https://guide.wagtail.org/en/concepts/reports/markdown/): Reports are lists of pages that match a specific search. These lists give you an overview of the different actions taken on your website.
        - [Users status](https://guide.wagtail.org/en/concepts/users-status/markdown/): A Wagtail user can either be active or inactive. A user is active if they have the right permissions to log in and perform any action in the Admin interface.
        - [Page status](https://guide.wagtail.org/en/concepts/page-status/markdown/): Page status has to do with the current state of your pages. Your pages can be in one of seven different states.
        - [Accessibility features](https://guide.wagtail.org/en/concepts/accessibility-features/markdown/): An overview of the accessibility features built into the Wagtail admin interface, including navigation, keyboard support, and screen reader aids.
        - [Scheduled publishing](https://guide.wagtail.org/en/concepts/scheduled-publishing/markdown/): Schedule pages and snippets to go live at a specific date and time, and manage scheduled content revisions.
        - [Wagtail API](https://guide.wagtail.org/en/concepts/wagtail-api/markdown/): The Wagtail API lets other applications and integrations read, create, edit, and publish your content, with the same permissions and rules as the Admin interface.
    - [Reference](https://guide.wagtail.org/en/reference/markdown/): Our reference material gets to the point, giving the key information at a glance.
        - [Browser compatibility](https://guide.wagtail.org/en/reference/browser-compatibility/markdown/): For the best experience and security, we recommend that you keep your browser up to date.
        - [Content checks](https://guide.wagtail.org/en/reference/content-checks/markdown/): A built-in content quality checker system to meet high standards on accessibility, SEO, tone of voice, and any other aspect of content performance.
            - [Page metadata](https://guide.wagtail.org/en/reference/content-checks/page-metadata/markdown/): How Wagtail checks page metadata fields, including previews for search engines and other crawlers
        - [Account settings](https://guide.wagtail.org/en/reference/account-settings/markdown/): User account settings are specific to your account. Includes user preferences, notification settings, and more.
        - [Multi-site](https://guide.wagtail.org/en/reference/multi-site/markdown/): Reference for running multiple websites with Wagtail: how sites map hostnames to pages, and multi-site, multi-instance and multi-tenancy compared.
    - [Releases](https://guide.wagtail.org/en/releases/markdown/): Here are overviews of changes made to Wagtail in specific new releases.
        - [New in Wagtail 8.1](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-8-1/markdown/): Discover Wagtail 8.1: SEO metadata directly in content checks, better sitemaps for multilingual sites, and API v3 improvements
        - [New in Wagtail 8.0](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-8-0/markdown/): Discover Wagtail 8.0: the new v3 API to create, edit, and publish content programmatically, plus improvements to the site switcher, workflow details, and image handling.
        - [New in Wagtail 7.4](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-7-4/markdown/): Explore Wagtail 7.4: refined autosave, draft‑saving incomplete blocks, customizable listings, enhanced search, content checks, UI tweaks, and security fixes.
        - [New in Wagtail 7.3](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-7-3/markdown/): New features and other highlights from Wagtail 7.3: autosave, llms.txt, image performance
        - [New in Wagtail 7.2](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-7-2/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 7.2
        - [New in Wagtail 7.1](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-7-1/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 7.1
        - [New in Wagtail 7.0](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-7-0/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 7.0
        - [New in Wagtail 6.4](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-6-4/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 6.4
        - [New in Wagtail 6.3](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-6-3/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 6.3
        - [New in Wagtail 6.2](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-6-2/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 6.2
        - [New in Wagtail 6.1](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-6-1/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 6.1
        - [New in Wagtail 6.0](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-6-0/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 6.0
        - [New in Wagtail 5.2](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-5-2/markdown/): Highlights from the new admin features in Wagtail 5.2
        - [New in Wagtail 5.1](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-5-1/markdown/): Here are highlights from Wagtail 5.0. For more details, view the full v5.0 release notes.
        - [New in Wagtail 5.0](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-5-0/markdown/): Here are highlights from Wagtail 5.0. For more details, view the full v5.0 release notes.
        - [New in Wagtail 4.2](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-4-2/markdown/): With Wagtail 4.0, 4.1, and now 4.2 – we've added many substantial updates to the Wagtail page editor as well as some other tools that support every member of a content team.
        - [New in Wagtail 4.1](https://guide.wagtail.org/en/releases/new-in-wagtail-4-1/markdown/): With Wagtail 4.0 and 4.1, we've added many substantial updates to the Wagtail page editor as well as some other tools that support every member of a content team.
    - [About](https://guide.wagtail.org/en/about/markdown/): The User Guide is a website to help content editors, moderators, administrators, and other users learn how to use the Wagtail content management system (CMS).
        - [Privacy policy](https://guide.wagtail.org/en/about/privacy-policy/markdown/): What information the Wagtail User Guide collects when you visit or use the site, why we collect it, and who we share it with.
        - [Documentation formats](https://guide.wagtail.org/en/about/documentation-formats/markdown/): The user guide is available in different formats, for people and for their agents: web pages, Markdown, llms.txt, an agent skill, a Model Context Protocol server, WebMCP tools, and an API.
        - [Digital emissions](https://guide.wagtail.org/en/about/digital-emissions/markdown/): How we measure the Wagtail User Guide's carbon emissions, and the services the site relies on.
