# Nýtt í Wagtail 6.1

Page URL: https://guide.wagtail.org/is-latest/releases/new-in-wagtail-6-1/


Hérna eru meginpunktar Wagtail 6.1. Fyrir frekar upplýsingar skoðaðu allt í [v6.1 útgáfuskjölunum](https://docs.wagtail.org/en/stable/releases/6.1.html).

## Samsvörun í útliti haldið áfram

![Documents listing with Search field in header Add document button and a Collections dropdown Underneath are 2 rows of documents with a header row above](https://guide-media.wagtail.org/images/Documents_listing_with_Search_field_in_header_.width-900_X1WPjE0.png)

Vinna við samsvörun útlits stjórnendaviðmótsins hefur haldið áfram. Í þessari útgáfu var unnið í samsvörun útlits í eftirfarandi:

* Mynda skráningar
* Skjala skráningar
* Síðu og staðsetningar skráningar
* Viðmót sögu breytinga á síðum og snifsum
* Sendingar rafrænnaeyðublaða
* Skráningar safna
* Hópar
* Notendur
* Viðmót vinnuflæðis og skrefa vinnuflæðis
* Mæla með leitarniðurstöðum
* Tilvísanir

Með þessu vonum við að auka notendaupplifun yfir vefumsjónarkefið. Samsvörun útlits er hannað svo að það eykur upplýsingaþéttleika vefumsjónarkefisins og virkar vel á síður sem eru með marga síunar möguleika.

## **Upplýsingar í stjórnendaviðmótinu**

![Editing interface for Welcome to the Wagtail Bakery, in snug mode](https://guide-media.wagtail.org/images/Editing_interface_for_Welcome_to_the_Wagtail_B.width-900.png)

Wagtail býður nú upp á leið sem gerir þér kleift að stjórna hversu miklar upplýsingar þú sérð á stjórnendaviðmótinu í gegnum. Þessu getur þú stjórnað í gegnum [notandastillingar]().

Þú getur skipt á milli sjálfgefinnar stillingar og þéttrar stillingar sem að minnkar bil og stærð á efnisköflum. Þessa stillingu má finna í reikningstillingar undir **þemastillingar**. Þar getur þú breytt frá sjálfgefið yfir í þétt.

Þessi breyting gerir notendum auðveldara fyrir að stilla vefumsjónarkerfið eins og þeim líkar best.

## **Lyklaborðs flýtileiðir**

![Keyboard shortcuts dialog](https://guide-media.wagtail.org/images/Keyboard_shortcuts_dialog.width-900.png)

Í hjálparglugganum er ný valmynd sem veitir yfirsýn yfir lyklaborðs flýtileiðir sem hægt að nota í stjórnandaviðmótinu.

Við vonumst til þess að kynna til leiks fleiri flýtileiðir í framtíðinni og stöðugt skrá niður allar flýtileiðir sem eru aðgengilegar á vefumsjónarkerfinu svo þau sem nýta sér lyklaborðs flýtileiðir geti kynnt sér þær sem við höfum upp á að bjóða.

### **Betri leiðsögn að efni sem varið er með lykilorðum**

![Page privacy dialog with the Shared Password option selected](https://guide-media.wagtail.org/images/Page_privacy_dialog_with_the_Shared_Password_o.width-900.png)

Wagtail er nú með auka leiðsögn fyrir einka síður og [einka söfn (skjöl)](/en-latest/how-to-guides/manage-collections/) til þess að vara notendur við gildrunni að notast við valmöguleikan að deila lykilorðum. Fyrir verkefni sem eru með hærri öryggisstaðla er einnig hægt að aftengja valmöguleikann að deila lykilorðum.

## Aðrar breytingar á notendaviðmótinu.

Hérna eru aðrar breytingar gerðar á notendaviðmótinu í vefumsjónarkerfinu:

* Möguleiki á að breyta mörgum notendum í einu í breytingarviðmóti notenda. Ýttu á takkana shift+click til að merkja marga í einu
* Nota sérsniðin tjákn í breytingarviðmóti stillinga
* Það hefur verið gengið úr skugga að endurröðunar takkarnir virki fyrir í InlinePanel
* Það hefur verið gengið úr skugga að felligluggar geti ekki orðið hærri en skjárinn sem þú er á og hægt er að skruna í gegnum listann ef þarf

