# Nýtt í Wagtail 5.0

Page URL: https://guide.wagtail.org/is-latest/releases/new-in-wagtail-5-0/

> Hérna eru meginpunktar Wagtail 5.0. Fyrir frekari upplýsingar skoðið útgáfusköl v5.0.


Hérna eru meginpunktar Wagtail 5.0. Fyrir frekari upplýsingar skoðaðu allt í [v5.0 útgáfuskjölunum](https://docs.wagtail.org/en/latest/releases/5.0.html).

### **Upplýsingar um notkun hluta og eyða hlutum**

Nú þegar síðu, mynd, skjölum eða snifsum er eytt sýnir staðfestingaskjárinn samantekt af því hvar hluturinn er notaður svo notendur geti áttað sig betur á áhrifum þess að eyða hlutnum.

Upplýsingar um notkun er einnig til staðar fyrir síður, ekki einungis en myndir, skjöl og snifsi.

### **Stuðningur við myndir í SVG skráarsniði**

Myndasafnið getur nú tekið á móti myndum í SVG sniði sé það stillt svo.

### **Betrumbætur aðgengis skoðara**

Innbyggði [aðgengis skoðarinn](https://docs.wagtail.org/en/latest/advanced_topics/accessibility_considerations.html#built-in-accessibility-checker) hefur verið uppfærður:

* Fimm athuganir til viðbótar
* Flokkun niðurstaðna skoðarans eftir því hvar á síðunni þær eru
* Merkir stíla svo auðveldara sé að auðkenna hvar villurnar eru.

### **Yfirlitskortið alltaf opið**

Eftir að yfirlitskortið var kynnt til leiks í Wagtail 4.1 höfum við gert mikið af betrumbætum:

* Helst opið þar til því er lokað. Notendur geta nú haft það opið eða lokað eftir því sem þau vilja.
* Þegar það er opið geymist sú stilling þegar farið er á milli mismunandi síðna í vefumsjónarkerfinu.
* Yfirlitskortið er og „fella allt saman" hnappurinn birtast nú við við hlið hliðarvalmyndarinnar í stað þess að vera undir henni svo hægt sé að nota þau hvenær sem er.
* Smellur á hvaða hlut sem er opnar yfirlitskortið, með viðeigandi texta fyrir skjálesa.
* Að vafra til efniskafla sem að er felldur saman mun opna þennan part.

### **Dökkt þema**

Stjórnendaviðmót Wagtail styður nú dökkt þema. Hægt er að kveikja á nýja dökka þemanu í notendastillingum. Einnig er hægt að velja ljóst þema eða sjálfgefið samkvæmt stýrikerfi.

Við vonum að þetta nýja þema muni auka aðgengi fyrir notendur sem kjósa heldur að lesa ljósan texta á dökkum bakgrunni. Einnig styður dökka þemað við orkusparnað fyrir notendur OLED skjáa.

