# Nýtt í Wagtail 4.2

Page URL: https://guide.wagtail.org/is-latest/releases/new-in-wagtail-4-2/

> Með Wagtail 4.0, 4.1 og nú 4.2 höfum við bætt við verilegum uppfærslum síður auk annara tóla sem styður við alla meðlimi teymisins. 


Í wagtail 4.2 eru betrumbætur á virkni sem var áður bætt við í [Wagtail 4.1](/en-latest/releases/new-in-wagtail-4-1/) og [4.0](https://wagtail.org/blog/how-you-can-make-content-soar-with-wagtail-40/).

## Öflugri snifsi

Með áframhaldandi breytingum sem að voru kynntar í síðustu útgáfu eru snifsi komin með tvo nýja eiginleika hliðstæðir eiginleikum síðna:

* Læsing - til þess að hindra aðra notendur í því að eiga við og breyta snifsi.
* [Vinnuflæði](/en-latest/how-to-guides/configure-workflows-for-moderation/) – til þess að byggja upp vinnuferla þegar efni er yfirfarið á síðunni þinni.

### Haka í mörg box

Hægt er að haka í mörg box á sama tíma ef síðan er stillt þannig þegar vefsíðan þín er forrituð. Þetta skjáskot sýnir dæmi þar sem valmynd í „Person" leyfir okkur að velja marga höfunda á blogg færslu í einu:

![Multiple chooser panel for persons, with four items selectable](https://guide-media.wagtail.org/images/Multiple_chooser_panel_for_persons_with_four_i.width-900.png)

## Stækkanlegur hliðarfleki

Til þess að nýta plássið sem best getur þú núna stækkað og minnkað hliðarflekann með því að smella á „grip" hnappinn og draga flekann í þá stærð sem hentar þér. Hérna er dæmi af forskoðunarflekanum.

![Page editor for "Bread and Circuses" page. The form to the left, and to the right the Preview side panel is expanded, showing the page as it would appear to users on Mobile devices](https://guide-media.wagtail.org/images/Page_editor_for_Bread_and_Circuses_page_The_fo.width-900.png)

## Innbyggður aðgengis skoðari

Wagtail bíður upp á innbyggðann aðgengis skoðara sem má finna í aðgengisstikunni. Skoðarinn hjálpar höfundum efnis að hafa betra aðgengi að síðunni sinni í samræmi við WCAG staðalinn (Web Content Accessibility Guidelines).

![Accessibility checker showing one error with a heading hierarchy issue](https://guide-media.wagtail.org/images/Accessibility_checker_showing_one_error_with_a.width-900.png)

Skoðarinn fylgir eftirfarandi reglum, þessar reglur eru með þeim algengustu og alvarlegustu sem eru brotnar af ritstjórum sem nota Wagtail:

* `empty-heading`: Þessi regla athugar hvort að fyrirsagnir séu tómar. Tómar fyrirsagnir eru villandi fyrir skjálesara og ætti að forðast eftir fremsta megni.
* `p-as-heading`: Þessi regla athugar hvort að meginmál sé notað í stað fyrirsagna. Meginmál ætti ekki að vera notað í stað fyrirsagna þar sem það getur verið villandi fyrir notendur sem treysta á fyrirsagnir til þess að vafra í gegn um efni.
* `heading-order`: Þessi regla athugar hvort að fyrirsagnir séu í rangri röð. Fyrirsögnum ætti að vera raðað upp á rökréttann og samkvæman hátt, aðal fyrirsögnin (h1) og eftir henni koma undirfyrirsagnir (h2, h3, o.s.frv).

## Betrumbætur á textareitum (e. rich text)

Eftir endurgjöf frá notendum Wagtail á [betrumbætum textareita í Wagtail 4.0](https://docs.wagtail.org/en/stable/releases/4.0.html#rich-text-improvements-4) höfum við haldið áfram og gert hann enn betri til þess að aðlaga að mismunandi notkun.

* Notendur geta nú valið milli þess hafa verkfærastikuna „fljótandi" eða að festa hana efst. Þessi verkfærastika sýnir alla sniðvalkosti.
* Skástrikið '/', skipanaflekinn og blokkaplokkarinn (e. block picker), sýnir nú alla sniðvalkosti texta fyrir utan stíla.
* Skástrikið '/' er nú alltaf til taks sama hvar músin þín er stödd til þess að bæta við efni hvar sem er í textanum, breyta núverandi efni og skipta upp StreamField blokkum í miðri efnigrein þegar þarf á að halda.
* Blokkaplokkarinn sýnir núna tvo dálka svo að fleiri valkostir birtist þér án þess að þurfa að skruna.

