# Vinna með notendur og aðgangsstýringar

Page URL: https://guide.wagtail.org/is-latest/how-to/managing-users-and-roles/

> Algengt verkefni fyrir stjórnanda er að bæta við, breyta eða fjarlægja notendur.


Algengt verkefni fyrir stjórnanda er að bæta við, breyta eða fjarlægja notendur.

Þetta er gert í gegnum 'Notendur' valmyndina sem er undir Stillingar í aðal valmyndinni vinstra megin á skjánum.

Í þessu viðmóti sérðu alla notendur, aðgang þeirra eða hlutverk, og stöðu þeirra (virkir eða óvirkir).

Þú getur raðað þessum lista eftir nafni eða notandanafni.

![The users’ listing, with search and a CTA to add users. This shows three rows with users Olivia Ava, Admin User, and Muddy Waters](https://guide-media.wagtail.org/images/screen36_users_interface.width-900.png)

Veldu einn eða fleiri notendur með hakreitnum vinstra megin við hverja röð til þess að nota magn aðgerðir í stiku sem birtist neðst á skjánum fyrir valda notendur.



![The users’ listing, with checkboxes in the first column. The checkbox for the "Admin user" row has been checked, and a footer with different actions shows at the bottom of the screen](https://guide-media.wagtail.org/images/screen365_users_bulk_actions.width-900.png)

Þegar þú smellir á nafn notanda ferð þú yfir á síðu með nánari upplýsingum um þann notanda. Þar getur þú breytt upplýsingum um þann notanda.


Note: Það er hægt að breyta lykilorðum notenda í þessu viðmóti, en það er þess virði að hvetja notendur til að nota 'Gleymt lykilorð' á innskráningarsíðunni. Þetta getur sparað þér mikinn tíma!


Smelltu á 'Hlutverk' flipann til þess að breyta því hvaða réttindi notandinn hefur. Stöðluð Wagtail uppsetning er með þrjú hlutverk:

* **Editor / Skrifaðgangur**
  * Getur búið til og skoðað drög: **Já**
  * Getur sett síðu í loftið: **Nei**
  * Getur farið í stillingar: **Nei**
* **Ritstjóri / Moderator:**
  * Getur búið til og skoðað drög: **Já**
  * Getur sett síðu í loftið: **Já**
  * Getur farið í stillingar: **Nei**
* **Stjórnandi**
  * Getur búið til og skoðað drög: **Já**
  * Getur sett síðu í loftið: **Já**
  * Getur farið í stillingar: **Já**

