# Staða síðna

Page URL: https://guide.wagtail.org/is-latest/concepts/page-status/

> Staða síðna gefur til kynna núverandi stöðu á síðunum. Síðurnar geta verið með sjö mismunandi stöður.


Staða síðna gefur til kynna núverandi stöðu á síðunum. Síðurnar geta verið með sjö mismunandi stöður. Þær eru eftirfarandi:

## Uppkast

Síða fær stöðuna _uppkast_ þegar hún er ný búin til og hefur verið vistuð sem _drög_. Meiginatriði eru sú að síðan er ný og hefur aldrei verið birt á vefnum.

Þegar síða er með stöðuna _uppkast_ er hún einungis sjáanleg á [stjórnandaviðmótinu](/en-latest/concepts/wagtail-interfaces/) en ekki á sjálfri vefsíðunni þinni.

## Bíður samþykkis

Þegar þú sendir síðu, sem hefur ekki verið birt á vefnum, til samþykkis stjórnanda fær hún stöðuna _bíður samþykktar_

Síðan birtist á vefsíðunni þinni þegar hún hefur verið samþykkt af notanda með aðgang sem leyfir samþykktir á síðum. Þegar síðan hefur verið birt breytist staða síðunnar yfir í _í birtingu_. Sjálfgefið er að [stjórnandi](/en-latest/how-to-guides/manage-users-and-roles/) og [ritstjóri](/en-latest/how-to-guides/manage-users-and-roles/) geti samþykkt síður sem bíða eftir samþykki.

## Tímasett

Síða með stöðuna _tímasett_ er ekki í birtingu en hefur verið stillt á að fara í loftið á ákveðnum degi og tíma. Þegar sú dagsetning rennur upp breytist staða hennar í _í birtingu_.

Einnig er hægt að áætla dag og tíma sem að síðan er útrunnin og þar af leiðandi tekin úr loftinu. Þegar sá dagur rennur upp breytist staða hennar í _drög_

## Í birtingu

Síða fær stöðuna _í birtingu_ þegar þú setur hana í birtingu. Þú getur sett nýja síðu í birtinu, birt breytingar á síðu, afritað eða speglað síðu.

Síður með stöðuna _í birtingu_ getur þú séð á vefsíðunni þinni.

## Í birtingu + uppkast

Síða er með stöðuna _Í birtingu + uppkast_ er í birtingu en nýrri útgáfa hennar er enn uppkast.

Það þýðir að á vefsíðunni þinni lítur hún út eins og hún gerði þegar hún var síðast sett í birtingu en breytingarnar sem að voru gerðar og vistaðar sem uppkast eru ekki aðgengilegar á vefsíðunni. Til þess að birta breytingarnar á vefsíðunni getur þú sett síðuna í birtingu með breytingunum og staða síðunnar mun breytast í _í birtingu_.

## Í birtingu + (önnur staða)

Síða með stöðunni _Í birtingu + (önnur staða)_ hefur verið sett í birtingu og síðan hafa aðrar aðgerðir verið gerðar á síðunni. Til dæmis eef að síða er með stöðuna _Í birtingu + (bíður samþykktar)_ hefur síðan verið sett í birtingu en breytingar á henni hafa verið sendar til samþykktar stjórnenda.

