# Notendastillingar

Page URL: https://guide.wagtail.org/is-latest/accessibility-features/user-account-preferences/


Notanda stillingar falla einungis undir þinn reikning. Þú getur nálgast þínar stillingar með því að smella á notandanafnið þitt neðst í valmyndinni til vinstri og smellt á reikningur, þá ættir þú að sjá stillingarnar þínar.

![The account menu within the sidebar](https://guide-media.wagtail.org/images/The_account_menu_within_the_sidebar.width-900.png)

## Aðgangsstillingar

Aðgangsstillingar eru eftirfarandi:



![User profile locale and theme settings](https://guide-media.wagtail.org/images/User_profile_locale_and_theme_settings.width-900.png)

### Valið tungumál

Stjórnandaviðmótið í Wagtail styður fjölmörg tungumál. Til þess að velja tungumál smelltu á felligluggann undir **valið tungumál**. Þegar þú velur þitt tungumál hefur það áhrif á allt vefumsjónarkerfið.

### Núverandi tímabelti

Stillingar núverandi tímabeltis má finna í undir **núverandi tímabelti** í aðgangs stillingunum. Til þess að breyta tímabeltinu þínu smelltu á felligluggann undir núverandi tímabelti og veldu það tímabelti sem þú ert í.

### **Þema stjórnendaviðmótsins**

Wagtail býður notendum upp á eftirfarandi þemu:

* Ljóst
* Dökkt
* Sjálfgefið

Hægt er að velja ljóst eða dökkt þema eftir því hvað notandanum finnst betra. Sjálfgefna stillingin fer eftir kerfisstillingum tölvunnar.

## **Stillingar tilkynninga**



![User profile notification settings](https://guide-media.wagtail.org/images/User_profile_notification_settings.width-900.png)

Stillingar tilkynninga gerir notendum kleift að velja tilkynningar þau vilja fá sem varðandi [vinnuflæði](/en-latest/how-to-guides/configure-workflows-for-moderation/). Þú getur valið að fá tilkynningar fyrir ýmislegt, t.d. uppfærslur, stöður og athugasemdir. Tilkynningarnar hjálpa þér að fylgjast vel með öllum breytingum og uppfærslum innan vefumsjónarkerfisins.

