# Vafravandamál

Page URL: https://guide.wagtail.org/is-5.0.x/reference/browser-issues/

> Fyrir bestu upplifun og mesta öryggið mælum við með því að þú uppfærir vafrann þinn reglulega. 


Sum vandamál sem koma upp í Wagtail gætu tengst vafranum. Prófaðu að [hreinsa flýtiminni og vafrakökur](https://www.refreshyourcache.com/) eða prófaðu að nota Wagtail með [öðrum vafra](https://browsehappy.com/) til þess að sjá hvort vandamálið tengist vafranum.

Það verður að vera [kveikt á JavaScript í vafranum](https://www.enable-javascript.com/) til þess að Wagtail virki rétt.

## **Vafrastuðningur**

Fyrir bestu upplifun og mesta öryggið mælum við með því að þú uppfærir vafrann þinn reglulega. Skoðaðu [Browse Happy](https://browsehappy.com/) fyrir frekari upplýsingar.

## **IE11**

Wagtail hætti að styðja IE11 í útgáfu 2.15.

* Í Wagtail 2.11 (LTS) voru villuskilaboð birt í stjórnborðinu fyrir IE11 notendur með stjórnendaaðgang.
* Í Wagtail 2.12 voru skilaboðin birt öllum notendum, óháð réttindum þeirra.
* Í Wagtail 2.13 og 2.14 voru skilaboðin birt í toppnum á öllum síðum.
* Wagtail 2.15 og nýrri útgáfur styðja ekki IE11.
* Frá og með Wagtail 2.16 er engin viðvörun birt til notenda.

Ef þetta hefur áhrif á þig eða fyrirtækið/stofnunina sem þú vinnur hjá ættir þú að skoða aðra vafra sem eru í boði. Wagtail er fullkomlega samhæft með Microsoft Edge, vafranum sem kom í staðinn fyrir Internet Explorer. Þú gætir þá notað [IE mode](https://docs.microsoft.com/en-us/deployedge/edge-ie-mode) virknina í Edge til þess að halda aðgangi þínum að vefsíðum sem krefjast IE11, á meðan aðrar síður og kerfi eins og Wagtail geta notað nýjustu virkni og möguleika vafrans til hins ítrasta.

## **Aðgengismál og tæknilausnir**

Við viljum að Wagtail sé aðgengilegt fyrir notendur með ýmis konar tækni sem auðveldar þeim aðgengi, en við vitum að það virkar ekki allt. [Skýrslan okkar um aðgengismál](https://docs.google.com/spreadsheets/d/1l7tnpEyJiC5BWE_JX0XCkknyrjxYA5T2aee5JgPnmi4/edit) gefur gott yfirlit yfir stöðu mála.

