# Vinna með myndir

Page URL: https://guide.wagtail.org/is-4.2.x/how-to/managing-images/

> Ef þú vilt breyta, bæta við eða eyða myndum úr vefumsjónarkerfinu án þess að gera það á efnissíðu, þá er hægt að gera það úr myndaumsjónarkerfinu. Það er aðgengilegt úr vinstri valmyndinni.


Ef þú vilt breyta, bæta við eða eyða myndum úr vefumsjónarkerfinu án þess að gera það á efnissíðu, þá er hægt að gera það úr myndaumsjónarkerfinu. Það er aðgengilegt úr vinstri valmyndinni.

![Images listing, with header and images grid](https://guide-media.wagtail.org/images/Images_listing_with_header_and_images_grid.width-900.png)

* Veldu margar myndir með því að velja hakreitina efst í vinstra horni hverrar myndar, þá er hægt að nota aðgerðaslánna neðst á skjánum til að gera sömu aðgerðina á allar völdu myndirnar

![Images listing, with checkboxes shown next to images. Five images are selected, and a bottom menu shows different actions as well as a "5 images selected" label](https://guide-media.wagtail.org/images/screen315_images_bulk_actions.width-900.png)

* Með því að smella á mynd er hægt að breyta gögnum sem eiga við myndina. Þetta innifelur titil, fókussvæði og margt fleira.

![Image editing form for Olivia Ava image. To the right of the form is an image preview, focal point controls, and metadata about the image](https://guide-media.wagtail.org/images/screen32_image_edit_page.width-900.png)

## **Breyta myndinni**

* Þegar verið er að breyta mynd þá er hægt að skipta um myndaskrá sem á við þessa mynd. Það þýðir að hægt er að uppfæra myndina án þess að uppfæra allar síður þar sem myndin er staðsett.


Warning: Með því að skipta út myndaskránni er hægt að breyta um mynd á öllum síðum sem nota hana.


## **Fókussvæði**

* Þetta viðmót gerir þér kleift að velja fókussvæði sem getur haft áhrif á hvernig myndin er birtist endanotendum.
* Ef myndir eru skornar á einhvern hátt til að láta þær passa í ákveðin form, þá mun fókussvæðið ákvarða miðpunktinn sem notaður er til að skera til myndina.
* Til að stilla af fókussvæðið, dragðu kassa í kringum mikilvægustu svæði myndarinnar.
* Til að fjarlægja fókussvæðið, smelltu þá á takkann fyrir neðan myndina.
* Ef þessi virkni er sett upp á vefsíðunni, þá ættirðu að sjá að myndin á vefsíðunni breytir skurðinum til að fókusa á valda svæðið.

