# Vinna með skrár

Page URL: https://guide.wagtail.org/is-4.2.x/how-to/managing-documents/

> Hægt er að hafa umsjón með skrám eins og PDF skrám í Skjöl sem þú finnur í valmyndinni á vinstri hönd.


Skrár á borð við PDF er hægt að vinna með í Skráarstjóranum, sem má finna í vinstri valmyndinni. Skráarstjórinn gerir þér kleift að bæta við og eyða skrám úr vefumsjónarkerfinu.

![Documents listing, with Search field in header, Add document button, and a Collections dropdown. Underneath, are 4 rows of documents with a header row above](https://guide-media.wagtail.org/images/screen29_documents_page.width-900.png)

* Bættu við skrám með því að smella á hnappinn _Bæta við skrá_ uppi í hægra horninu.
* Leitaðu að skrám í vefumsjónarkerfinu með því að slá inn leitarstreng í leitarreitinn. Niðurstöðurnar verða uppfærðar sjálfkrafa á meðan þú skrifar.
* Þú getur einnig síað niðurstöðurnar niður á _Safn_ með því að velja eitt slíkt úr fellivalmyndinni fyrir ofan skráarlistann.

![Documents listing, with four items, two of which are selected with their left-hand checkbox. Underneath, an action menu shows different actions and the text "2 documents selected](https://guide-media.wagtail.org/images/screen295_documents_bulk_actions.width-900.png)

* Veldu mörg skjöl með því að velja hakreitina vinstra megin við hverja röð, þá er hægt að nota aðgerðaslánna neðst á skjánum til að gera sömu aðgerðina á allar völdu skrárnar
* Breyttu upplýsingum um skrá með því að smella á titil hennar.

![Document editing form for a "TPS Report Full Guidelines" Document. To the right we see the file size of 13.0 KB, and a "Usage Used 0 times" label](https://guide-media.wagtail.org/images/screen30_documents_edit_page.width-900.png)

* Þegar þú ert að breyta upplýsingum um skrá þá er hægt að skipta út skránni sjálfri. Það þýðir að þú getur uppfært skránna án þess að þurfa að uppfæra hana á öllum stöðum þar sem verið er að vísa í hana. Með því að skipta um skrá þá er nú vísað í nýju skránna á öllum síðum sem vísuðu í gömlu skránna.
* Breyttu safni skráar með því að velja nýtt safn í fellivalmyndinni.
* Bættu við merkjum með því að bæta þeim við í Merki reitinn
* Vistaðu eða eyddu skrá með tökkunum neðst í glugganum.


Warning: Eyddum skrám er eytt, ekki er hægt að nálgast þær aftur.

