# Vinna með söfn

Page URL: https://guide.wagtail.org/is-4.2.x/how-to/managing-collections/

> Aðgengi að ákveðnu setti af myndum og skjölum er hægt að takmarka með því að setja þau í söfn.


Aðgengi að ákveðnu setti af myndum og skjölum er hægt að takmarka með því að setja þau í söfn. Allar myndir og skjöl eru sjálfkrafa sett í 'rótar' safnið, en notendur með nægileg réttindi geta búið til ný söfn í **Stillingar -> Söfn** svæðinu í vinstri valmyndinni.

![Collections listing with three rows: Bakeries, BreadPage Images, Other](https://guide-media.wagtail.org/images/Collections_listing_with_three_rows_Bakeries_B.width-900.png)

## Bæta við safni

* Þú býrð til nýtt safn með því að smella á **bæta við safni**. Gefðu safninu nafn og smelltu á **vista**.

![Form to create a collection, with a Name text field and Parent dropdown field](https://guide-media.wagtail.org/images/Form_to_create_a_collection_with_a_Name_text_f.width-900.png)

## Bæta myndum / skrám í safn

* Farðu í **Myndir** eða **Skrár** valmyndirnar og veldu safn úr fellivalmyndinni.
* Þú getur einnig valið í hvaða safn hlutir eiga að lenda þegar verið er að hlaða upp mörgum myndum eða skrám.

![Screenshot of the Add Images page, with a drag-and-drop zone, with the Collection dropdown field highlighted in red](https://guide-media.wagtail.org/images/Screenshot_of_the_Add_Images_page_with_a_drag-.width-900.png)

* Þú getur einnig sett mynd eða skrá í safn með því að breyta viðkomandi.

![Screenshot of the image editing form for an image titled Olivia Ava, with the Collection field highlighted in red](https://guide-media.wagtail.org/images/Screenshot_of_the_image_editing_form_for_an_im.width-900.png)

## Aðgengisstillingar

* Til að stilla aðgengi þeirra sem eiga að geta skoðað skjal í safni, farðu þá í **Stillingar > Söfn** og veldu safn. Smelltu því næst á aðgengisstillingar hnappinn fyrir ofan nafn safnsins.

![The collection editing form for BreadPage Images, with a red highlight around the Privacy: "public" form control](https://guide-media.wagtail.org/images/The_collection_editing_form_for_BreadPage_Imag.width-900.png)

* Í glugganum sem birtist er hægt að velja hvaða aðgengisstillingar eiga að eiga við safnið.

![Change privacy modal dialog, with four options as radio buttons](https://guide-media.wagtail.org/images/Change_privacy_modal_dialog_with_four_options_.width-900.png)

Aðgengi að safni eiga við það safn og öll söfn undir því safni. Þannig að ef þú takmarkar aðgengi að 'rótar' safninu, á verða öll skjöl á síðunni með sama takmarkaða aðgengi. Aðgengisstillingar annarra safna munu eingöngu eiga við það safn.


Note: Þótt að aðgengi sé takmarkað á safn, þá er aðgengið aðeins takmarkað á skjöl í safninu. Aðgengistakmarkanir eiga ekki við um myndir.

