# Búa til og breyta síðum

Page URL: https://guide.wagtail.org/is-4.2.x/how-to/creating-and-editing-pages/

> Create new pages by clicking the Add child page button. This creates a child page of the section you are currently in. In this case a child page of the &#39;Breads&#39; page.


## Búa til nýjar síður

Þú býrð til nýjar síður með því að smella á hnappinn **Bæta við undirsíðu**. Þá verður til undirsíða undir núverandi síðu. Hérna verður til undirsíða undir síðunni 'Breads'.

![Screenshot of the Breads page listing, with expanded "three dots" Actions menu in the header, showing 7 different page actions. One, "Add child page", is highlighted in red](https://guide-media.wagtail.org/images/screen091_page_more_dropdown.width-900.png)

## Breyta núverandi síðum

Svona geturðu breytt síðu sem þegar er til:

* Með því að smella á titil síðunnar í [Valmyndinni](/en-latest/how-to-guides/find-your-way-around/) eða í [leitarniðurstöðum](/en-latest/how-to-guides/find-your-way-around/).
* Smella á _Breyta_ hlekkinn fyrir neðan titilinn.
* Smelltu á _Breyta_ táknmyndina fyrir síðu í veftrénu

![Screenshot of the whole page editing screen in Wagtail, with sidebar, header, main form with page fields](https://guide-media.wagtail.org/images/screen12_edit_screen_overview.width-900.png)

* Þegar þú ert að breyta síðu birtist titill hennar efst á skjánum.
* Þú getur gert ýmsar aðgerðir eins og að afrita, færa eða eyða síðu með því að opna valmyndina efst hægra megin við titil síðunnar.
* Fyrir neðan titilinn sérðu síðutegundina og hlekk á sögu síðunnar.
* Ef síðan hefur verið gefin út, þá er hlekkur á síðuna sýndur í efst í hægra horninu.
* Þú getur kveikt og slökkt á athugasemdum með því að smella á merkið uppi til hægri, sem einnig sýnir fjölda athugasemda.
* Þú getur breytt titli síðunnar með því að smella á titil reitinn.
* Þegar þú ert að fylla út reit þá má oft sjá hjálpartexta hægra megin á skjánum

## Vinnuflæði

Ef síðan er í vinnuflæði sérð þú undir titlinum merki um í hvaða skrefi síðan er núna. Þegar þú smellir á þetta merki sérðu meiri upplýsingar um stöðu síðunnar í vinnuflæði, ásamt athugasemdum sem yfirlesarar hafa skilið eftir.

![The page editing form, with its Info side panel opened to the right, with a highlight on page workflow metadata](https://guide-media.wagtail.org/images/screen125_edit_screen_in_moderation.width-900.png)

Ef þú ert með réttindi til að gera ákveðin verkefni í vinnuflæði eins og að samþykkja eða biðja um breytingar muntu sjá þá valmöguleika í aðgerðastikunni neðst á skjánum.

## Athugasemdir

Notaðu athugasemda táknmyndina efst í hægra horninu til að skoða eða skilja eftir athugasemdir. Ef það eru athugasemdir við síðuna muntu sjá fjölda þeirra við hlið táknsins.

Þegar þú ert í athugasemda ham muntu sjá athugasemda hnapp þegar þú ferð með músina yfir reiti sem hægt er að skilja eftir athugasemdir um.

![Screenshot of a Subtitle form field with a comment button next to it, highlighted in red](https://guide-media.wagtail.org/images/screen49_new_comment_icon.width-900.png)

Ef það er engin athugasemd á reitnum getur þú búið til nýja.

Ef það er athugasemd fyrir getur þú smellt á hnappinn eða athugasemdina til þess að byrja að skrifa nýja athugasemd.

![Two form fields with a comment pop-up off to the right side](https://guide-media.wagtail.org/images/Two_form_fields_with_a_comment_pop-up_off_to_t.width-900.png)

Í sniðnum textareit (e. rich text) getur þú valið texta og smellt á athugasemda hnappinn til að gera athugasemd við valda textann.

!["Heat is gradually" text selection within a rich text editor. Above the selection, the inline toolbar shows, with a "bubble" icon comment button to the right in teal](https://guide-media.wagtail.org/images/22Heat_is_gradually22_text_selection_within_a_.width-900.png)

Allar þessar aðgerðir er hægt að framkvæma með því að nota flýtilykilinn `Ctrl + Alt + M` / `⌘ + Alt + M`.

Ef þú smellir á punktana þrjá efsti til hægri á athugasemd sérð þú valmynd sem þú getur notað til að loka athugasemdinni eða breyta eða eyða þínum eigin athugasemdum.

![A comment pop-up, with its three dots "actions" menu expanded, with Edit, Delete, Resolve options](https://guide-media.wagtail.org/images/A_comment_pop-up_with_its_three_dots_22actions.width-900.png)

Allar athugasemdir og breytingar á þeim eru einungis vistaðar þegar þú vistar síðuna.


Note: Í augnablikinu er ekki hægt að gera athugasemdir við reiti af tegundinni **InlinePanel** og **ListBlock**.


Örin hægra megin við athugasemda táknið sýnir athugasemdaflekann þar sem þú getur kveikt eða slökkt á tilkynningum í tölvupósti fyrir athugasemdir annarra notenda við síðuna.

![Wide screenshot of the page editor’s tabs and the comment notifications switch off to the right](https://guide-media.wagtail.org/images/screen53_commenting_notifications.width-900.png)




Note: Þú munt alltaf fá tilkynningar í tölvupósti fyrir þræði sem þú tekur þátt í, nema þú veljir að slökkva á tilkynningum í stillingum notandareikningsins þíns.
Allir þátttakendur í þræði munu fá tilkynningu í tölvupósti fyrir nýjar athugasemdir, jafnvel þó þeir hafi ekki lengur réttindi til að breyta síðunni.

